Fréttir & tilkynningar

Ný dælustöð í Reykjaveitu

Norðurorka hefur frá árinu 2007 rekið hitaveitu í Fnjóskadal og Grýtubakkahrepp, Reykjaveitu. Á vinnslusvæðinu á Reykjum í Fnjóskadal eru tvær borholur sem hafa verið virkjaðar og þaðan liggur 54 km lögn til Grenivíkur. Að reka svona langa hitaveitu hefur í för með sér margar áskoranir.

Jólakveðja og opnunartími yfir hátíðarnar

Við óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðiríkrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum góð samskipti á árinu sem er að líða. Opnunartími um hátíðarnar...

Þrif í vatnstönkum

Eitt af verkefnum Norðurorku er að tryggja nægilegt magn af hreinu og góðu neysluvatni til einstaklinga og fyrirtækja á veitusvæðinu. Við rekstur vatnsveitu er í mörg horn að líta og er eitt af fjölmörgum viðhaldsverkefnum okkar regluleg þrif á vatnstönkunum. Í morgun var stóri tankurinn (4.000 m3) á Rangárvöllum þrifinn.

Þjónustuver lokar kl. 14.00 föstudaginn 10. desember

Þjónustuver Norðurorku verður lokað frá kl. 14.00 föstudaginn 10. desember. Sé um áríðandi tilfelli að ræða má hafa samband í síma 621-1300.

Rafmagnslaust á Akureyri - Rafmagn komið á aftur

Rafmagnslaust er á norðurhluta Akureyrar þessa stundina (kl. 13:40). Óvíst er hvað veldur en við munum uppfæra fréttina um leið og við vitum meira.

Alþjóðlegi klósettdagurinn er í dag!

Á hverju ári má ætla að tæplega 200 tonn af ýmsum óæskilegum úrgangi berist í fráveitur um allt land. Það þýðir að um hálft kíló af rusli fer í klósettin eða niðurföll á hvern íbúa á landinu. Eitt af stóru verkefnum fráveitna á Íslandi er að minnka úrgang í fráveitu, þ.e. rusl sem ekki á þar heima. Klósettið er nefnilega ekki ruslafata!

Græna trektin og orkan úr eldhúsinu

Nú er runninn upp sá tími árs sem landsmenn steikja ógrynni af laufabrauði, soðnu brauði og kleinum og því langar okkur að minna á Grænu trektina sem auðveldar fólki að safna úrgangsolíu og -fitu sem síðar verður að eldsneyti...

Dæluupptekt við hitaveituborholu á Ólafsfirði

Í síðustu viku var unnið að dæluupptekt við hitaveituborholu 3 á Laugarengi Ólafsfirði.

Samfélagsstyrkir 2022 - Auglýst eftir umsóknum

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna vegna ársins 2022.

Útboð Holtahverfi norður - Gatnagerð og lagnir

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar (UMSA), fyrir hönd Akureyrarbæjar, Norðurorku, Mílu og Tengis, óskar eftir tilboðum í jarðvegsskipti og lagningu fráveitulagna, hitaveitulagna, vatnslagna, rafstrengja, fjarskiptalagna og ídráttarröra í götur og stíga í Holtahverfi á Akureyri.