Fréttir & tilkynningar

Snjallmælavæðing á Ólafsfirði

Á árinu 2022 áætlar Norðurorka að skipta öllum hemlum og eldri sölumælum hitaveitu á Ólafsfirði út fyrir snjallmæla. Samhliða því verður einnig uppsett söfnunarkerfi sem safnar upplýsingum úr mælunum.

Styrkir Norðurorku til samfélagsverkefna

Fimmtudaginn 17. febrúar úthlutaði Norðurorka styrkjum til samfélagsverkefna og fór athöfnin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Staðsetningin er vel við hæfi þar sem Norðurorka er bakhjarl Menningarfélagsins.

Starf rafvirkja á framkvæmdasviði

Norðurorka hf. óskar eftir að ráða rafvirkja á framkvæmdasvið. Starfið heyrir undir verkstjóra rafmagnsþjónustu.

Neyðarstjórn virkjuð vegna slæmrar veðurspár

Neyðarstjórn Norðurorku hefur verið virkjuð vegna slæmrar veðurspár. Miðað við spár og viðvaranir er talið líklegt að truflanir verði á flutningskerfi rafmagns en slíkt getur haft áhrif á kerfi Norðurorku. Ekki einungis á dreifiveitu rafmagns á Akureyri heldur einnig á hita-, vatns- og fráveitu þar sem margar dælur eru víða í kerfunum á öllu starfssvæðinu.

Framkvæmdir í Holtahverfi

Vegna framkvæmda í Holtahverfi í tengslum við nýtt hverfi verður losuð klöpp til að koma fyrir lögnum. Unnið verður við þetta á milli kl. 7.00 og 19.00 virka daga, af og til út febrúar. Hávaðamengun mun fylgja framkvæmdinni.

Tæp 20 tonn af rusli síuð úr fráveituvatni fyrsta árið

Nú er rúmlega eitt ár liðið frá því að hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót á Akureyri var tekin í notkun en þar er allt fráveituvatn á Akureyri hreinsað áður en því er veitt út í fjörðinn. Auk þess að minnka það rusl sem berst út í Eyjafjörðinn hefur tilkoma hreinsistöðvarinnar einnig leitt til þess að dregið hefur úr gerlamengun meðfram strandlengjunni á Akureyri.

Norðurorka hlýtur jafnlaunavottun

Norðurorka hefur hlotið jafnlaunavottun, sem er staðfesting á því að launakerfi fyrirtækisins uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 en jafnlaunakerfið skal innihalda kerfisbundnar aðferðir til að koma í veg fyrir kynbundinn launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna.

Starf verkefnastjóra v/sameiginlegra verkefna Akureyrarbæjar og Norðurorku

Norðurorka hf. óskar eftir að ráða verkefnastjóra til að sinna sameiginlegum verkefnum Akureyrarbæjar og Norðurorku. Umsóknafrestur er til og með 1. febrúar 2022.

Verðskrárbreytingar 1. janúar 2022

Miklar innviðaframkvæmdir hafa verið í gangi í flestum veitum Norðurorku undanfarin ár og er þar bæði um að ræða nýframkvæmdir og viðhald. Eitt af stærstu verkefnunum félagsins þessi árin er að auka orkumátt hitaveitunnar...

Við hvetjum viðskiptavini til að nýta frekar rafræna ferla

Norðurorka rekur mikilvæga innviði sem samfélagið reiðir sig á alla daga ársins og við viljum að sjálfsögðu vera í góðum sambandi við okkar viðskiptavini.