Val á raforkusala

Norðurorka sér eingöngu um dreifingu á rafmagni á Akureyri og er óheimilt að hafa aðkomu að vali notanda á raforkusala. Neytendur hafa val um af hvaða fyrirtæki þeir kaupa raforkuna. 

Notandi getur einnig ákveðið að skipta um raforkusala, óháð flutning, og er það gert með sambærilegum hætti. Notandi hefur samband við þann raforkusala sem hann kýs að hafa viðskipti við og raforkusalinn sér um skiptin.

Á heimasíðu Orkustofnunar má finna frekari upplýsingar ásamt lista yfir raforkusala á íslandi.