Fréttir & tilkynningar

Styrkir til samfélagsverkefna - Auglýst eftir umsóknum

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna vegna ársins 2021. Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2020. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Alþjóðlegi klósettdagurinn í dag

Úrgangur í fráveitu er vandamál alls staðar á landinu. Úrgangurinn skaðar lífríkið, þyngir rekstur fráveitukerfa og eykur kostnað sveitarfélaga vegna hreinsunar og förgunar á úrgangi um tugi milljóna króna á ári. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Meðburður í heita vatninu á Akureyri

Undanfarnar vikur hefur eitthvað borið á meðburði í hitaveitukerfi bæjarins, aðallega er um að ræða sand og leirefni. Þetta er afskaplega hvimleitt, efnið safnast í síur hjá notendum og getur þannig dregið verulega úr rennsli vatns. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Fráveitukerfið sett á yfirfall - mánudaginn 16. nóvember

Vegna vinnu við hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót verður fráveitukerfið sett á yfirfall norðan við Slippinn og við Krossanes mánudaginn 16. nóvember á milli klukkan 8 og 14.

Viðskiptavinir hvattir til að nýta frekar rafræna ferla v/COVID-19

Norðurorka rekur mikilvæga innviði sem samfélagið reiðir sig á alla daga ársins og við viljum að sjálfsögðu vera í góðu sambandi við okkar viðskiptavini. Til að lágmarka líkur á því að COVID-19 faraldurinn hafi áhrif á starfsfólk okkar og þar með rekstur fyrirtækisins óskum við eftir því að viðskiptavinir lágmarki komur sínar í þjónustuver eins og kostur er og nýti frekar aðrar leiðir fyrir erindi sín. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Viðskiptavinir geta sjálfir skilað inn álestri - rafrænt

Nú er komið að árlegum mælaálestri. Norðurorka hefur innleitt nýja lausn og hvetur nú viðskiptavini til að skila inn rafrænum álestri í gegnum „Mínar síður“... Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Ólafsfirðingar beðnir að fara sparlega með vatnið

Í dag hefst vinna við dæluupptekt við hitaveituborholu ÓF-4 Laugarengi í Ólafsfirði. Reiknað er með að verkið taki um 3 daga en dælan sem verið er að taka upp er á 100 m dýpi í holunni. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Dæluupptekt við hitaveituborholu á Þelamörk

Þessa dagana er unnið að dæluupptekt við hitaveituborholu LÞNS-10 á Laugalandi Þelamörk. Sjá nánari upplýsingar ásamt myndum með því að smella á fyrirsögn.

Breyttur opnunartími afgreiðslu Norðurorku

Frá og með 21. ágúst er opnunartími á þjónustuborði og í afgreiðslu Norðurorku eftirfarandi.

Rafmagnslaust á hluta Akureyrar fyrr í dag

Rafmagnslaust varð á hluta Akureyrar um hádegisbil í dag. Orsök bilunarinnar er óljós en talið er að grafið hafi verið í háspennustreng. Rafmagni hefur nú verið komið á eftir öðrum leiðum og því ætti enginn að finna fyrir rafmagnsleysi lengur.