Greiðsluleiðir

Norðurorka vill draga úr notkun pappírs og sendir ekki út greiðsluseðla nema sérstaklega sé óskað eftir því.  Á Mínum síðum er hægt að skoða notkun á rafmagni og heitu vatni, auk yfirlits yfir reikninga. Hægt er á einfaldan og myndrænan hátt að sjá hvernig orkunotkun hefur þróast og senda inn álestur í þeim tilgangi að fylgjast með eigin notkun.

Með beingreiðslum geta viðskiptavinir nýtt sér þjónustu viðskiptabanka síns til þess að greiða föst útgjöld. Til þess að virkja beingreiðslur þarf viðskiptavinurinn að gera samning við sinn banka um þá reikninga sem hann vill að séu skuldfærðir sjálfvirkt af bankareikningi sínum.

Með boðgreiðslum geta viðskiptavinir nýtt þá þjónustu kortafyrirtækja (banka) að láta skuldfæra orkureikning mánaðarlega á greiðslukortareikning sinn. 

Færsluhirðir Norðurorku er Teya.