Hitaveita

Ný verðskrá hitaveitu tók gildi 1. janúar 2023

Norðurorka selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt verðskrá og reglugerð Norðurorku fyrir heitt vatn.

Verðskrá fyrir afnot af heitu vatni skiptist í tvær grunneiningar (1) fast verð og (2) rúmmetragjald eða kílóvattstundagjald. Greiddur er sérstakur skattur af seldu heitu vatni, umhverfis- og auðlindaskattur, og er hann 2%. Virðisaukaskattur af hitaveitu til hitunar húsa og laugarvatns er 11%. Virðisaukaskattur af hitaveitu til annarar notkunar er 24%.

Almenn orkunotkun

Skýringar

Bakrásarhiti er í raun tilbúið viðmið og hefur ekki áhrif á heildarverð til viðskiptavina en er fest í tölvubúnað mælis í samræmi við reglugerð 561/2012.
Stilling á hemli gildir í eitt ár frá áramótum til áramóta. Breytingu á vatnsrennsli til aukningar er hægt að gera hvenær sem er, en til minnkunar einu sinni á ári, um áramót. Hemlar eru á útleið og í stað þeirra koma orkuígildismælar. 

Verðskrá hitaveitu (PDF) 

 Gjaldskrá hitaveitu í heild sinni á vef Stjórnartíðinda

Hafðu samband við okkur í síma 460-1300 eða á no@no.is ef þig vantar frekari upplýsingar.