10. des 2018

Lokað fyrir heitt vatn utan Glerár (að hluta) 11. desember - UPPFÆRT

Uppfært kl. 11:30.  Viðgerð er nú lokið. Verið er að hleypa vatni á þannig að innan skamms ættu allir á umræddu svæði að vera komnir með vatn.
Um leið og við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem áður auglýst lokun kann að hafa valdið þökkum við íbúum fyrir tillitssemina. 

 

Vegna bilunar verður lokað fyrir heitt vatn utan Glerár að hluta (sjá kort) á morgun, þriðjudaginn 11.des.2018.  

Áætlaður tími er kl. 10:00 og frameftir degi eða á meðan viðgerð stendur yfir.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.

Hér má sjá góð ráð við hitaveiturofi. 

Svæðið sem um ræðir má sjá á myndinni hér að neðan.