Norðurorka hf. rekur hitaveitu í átta sveitarfélögum við Eyjafjörð og í Þingeyjarsveit, vatnsveitu í fimm sveitarfélögum og rafveitu og fráveitu á Akureyri.
Í veitukerfum okkar eru fjölmörg mannvirki að ýmsu tagi s.s. dælustöðvar, tankar, borholuskúrar, dreifistöðvar, aðveitustöðvar, götuskápar, brunahanar og um 1.800 km af lögnum/strengjum í jörðu svo eitthvað sé nefnt.
Á síðunni "Veiturnar okkar" hér að ofan má finna nánari upplýsingar um hverja veitu fyrir sig.